Meloni boðar bann við búrkum og slæðum í skólum

Ítalska ríkisstjórnin boðar nýja löggjöf sem ætlað er að draga enn úr hlutfalli nemenda af erlendum uppruna í skólum landsins. Einnig stendur til að banna notkun búrkna og slæðna í menntastofnunum. Þegar eru í gildi lög sem banna hjálmanotkun og önnur klæði sem gera erfitt að bera kennsl á viðkomandi, nema gildar ástæður séu fyrir hendi.Forsætisráðherrann Giorgia Meloni boðaði nýju löggjöfina á samkomu ungliðahreyfingar flokks hennar, Bræðralags Ítalíu. Hún sagði jafnframt að foreldrum nemenda sem eigi verulega erfitt með að aðlagast verið gert skylt að læra ítölsku.Þegar er hlutfall erlendra nemenda við skóla á Ítalíu takmarkað við þrjátíu prósent nema í undantekningartilfellum. Meloni sagði ekkert um hvaða breyting yrði á því. Samkvæmt tölum ítölsku hagstofunnar Istat eru innan við tólf
Meloni boðar bann við búrkum og slæðum í skólum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd