Atvinnuleysi yfir veturinn áhyggjuefni á Borgarfirði eystri

Atvinnumál í minni þorpum á Austurlandi hafa verið til umræðu í sveita- og heimastjórnum undanfarið. Heimastjórn Borgarfjarðar eystri hefur áhyggjur af atvinnumálum þar, sér í lagi einsleitum störfum og árstíðasveiflum. Ólafur Arnar Hallgrímsson er í heimastjórn Borgarfjarðar eystri.„Það er líka þetta tímabundna atvinnuleysi sem er yfir vetrartímann, við þurfum að fylla upp í þetta gat, þarna kemur sértæki byggðakvótinn mikið inn.“Borgarfirði var úthlutað sértækum byggðakvóta frá Byggðastofnun 2024. Kvótinn er gefinn út til sex ára og nemur 200 þorskígildistonnum á ári. Karl Sveinsson er útgerðarmaður á Borgarfirði eystri.„Þessi tími yfir háveturinn er mjög erfiður sko. En svo fer þetta að lagast með hækkandi sól, og þá er fínt að hafa eitthvað svona til að dúlla við.“
Atvinnuleysi yfir veturinn áhyggjuefni á Borgarfirði eystri

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd