Kristilegir demókratar, flokkur Friedrich Merz Þýskalandskanslara, er fallinn út af þingi í Mekclenborg-Vestur Pommeraníu ef marka má útgönguspár. Flokkurinn hlaut 4,9 prósent en fimm þarf til að koma að manni. Merz segir niðurstöðuna áfall fyrir flokkinn, enda einsdæmi.Hægri jaðarflokkurinn Valkostur fyrir Þýskaland hlaut 37 til 38 prósenta fylgi og virðist því hafa skákað Jafnaðarmönnum sem stærsti flokkurinn í fylkinu. Í Berlín var það flokkurinn á hinum enda hins pólitíska litrófs sem kjósendur fylktu sér helst um.Vinstri jaðarflokkurinn Die Linke hlaut 25 til 26 prósent atkvæða og er öllu stærri en Kristilegir demókratar og Valkostur fyrir Þýskaland sem koma næstir.Niðurstöður kosninganna lofa ekki góðu fyrir kanslarann en hann kveðst ekki ætla að láta deigan síga. Á fundi í dag sagði