Þögnin ein ríkir í Grindavík, aðeins vindurinn gnauðar milli tómra húsa hefst frásögn og úttekt norska dagblaðsins VG á stöðu Grindavíkur eftir hamfarirnar 2023. Blaðamaður ræðir við Grindvíkinga sem hafa sitt að segja og Siggi bakari er á sínum stað, segist stundum ekki viss um hvort hann reki bakarí eða safn.