Víkingur lenti undir gegn KR á Meistaravöllum í gær en kom til baka og tryggði sér sigur, 1-2. Sigurinn gerði það að verkum að Víkingur innsiglaði Íslandsmeistaratitilinn og fagnaði á heimavelli KR. Gylfi Þór Sigurðsson var maður leiksins og er að auki Sterkasti leikmaður umferðarinnar, í boði Steypustöðvarinnar. „Mögnuð frammistaða. Gylfi var frábær varnarlega og sóknarlega í þessum leik. Ég get ekki talið hversu oft hann bjargaði Víkingum eftir mistök (ball recovery). Hann stjórnaði einnig miðjunni eins og hershöfðingi," skrifaði Andri Stefánsson, fréttamaður Fótbolta.net, í skýrslu sinni um leikinn. „Geggjuð tilfinning. Við erum búnir að vera að vinna að þessu allt tímabilið, allan veturinn og allt árið, þannig að þetta er bara geggjað," sagði Gylfi í viðtali eftir leikinn og hrósaði st