Umfangsmiklar framkvæmdir hafa staðið yfir í Gufudalssveit síðan 2019. Aðeins ein brú er eftir til að ljúka verkinu sem hefur verið bæði seinlegt og kostnaðarsamt.Framkvæmdir á Vestfjarðavegi nr. 60 hafa tekið lengri tíma og kostað meira en gert var ráð fyrir. Gylfi Ólafsson, formaður Fjórðungssambandsins, segir tafir leiðinlegar því verkefnið sé mikilvægt.„Með þessari brú klárast vegur fyrir tvo firði og eitt fjall. Sú framkvæmd nýtist ekki fyrr en brúin er komin á. Það er búið að verja mjög miklum peningum í að þvera firðina en það á eftir að klára þessa brú og það þarf bara að gerast sem fyrst.“Árið 2019, þegar Vegagerðin réðst í vegabætur í Gufudalssveit, stóð til að verkinu yrði lokið fyrir árslok 2023. Í vetur kynntu stjórnvöld drög að samgönguáætlun þar sem fram kom að verklokin yrð