Gefin út gul viðvörun vegna hvassviðris

Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula viðvörun á Suðurlandi og á Faxaflóa vegna hvassviðris. Viðvörunin tekur gildi klukkan fimm mánudagsmorgun og stendur yfir í þrjá klukkutíma. Veðurstofan spáir suðaustan 13 til 20 metrum á sekúndu með vindvhiður að 30-35 m/s undir Esju og Hafnarfjalli og undir Eyjafjöllum og austur að Mýrdal. Veðurstofan varar við því að vindurinn geti orðið varasamur fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind. Þetta á einkum við syðst á landinu. Veðurstofa Íslands
Gefin út gul viðvörun vegna hvassviðris

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd