Orri Steinn Óskarsson kom inn á sem varamaður og fékk rautt spjald hálftíma seinna þegar Real Sociedad vann Valencia í hörku leik. Valencia jafnaði metin í 2-2 með sjálfsmarki þegar skammt var til loka venjulegs leiktíma. Ander Barrenetxea tryggði Sociedad sigurinn í uppbótatíma.