„Ég rambaði nú hálfpartinn óvart á læknisfræðina, ég ætlaði mér ekki að verða læknir, en þetta var fyrsta árið sem inntökupróf var haldið og ég ákvað á síðustu stundu að fara,“ segir Ragnar Pálsson, læknir og sérfræðingur í nýrnaígræðslum við Massachusetts General Hospital í borg sem stundum hefur verið kölluð evrópskasta borg Bandaríkjanna, Boston.