Forseti Íþrótta- og ólympíusambands Íslands vill taka ofsaakstur af götunum og inn í öryggi akstursíþróttafélaga. Með því að auka aðgengi ungs fólks að íþróttinni sé hægt að vinna að forvörnum tengdum hraðakstri. „ÖRYGGIÐ ER ALLT Í AKSTURSÍÞRÓTTUM“ „Það sem við höfum viljað vinna með stjórnvöldum og samfélaginu öllu eru auðvitað forvarnir í sinni ítrustu mynd, af því að íþróttir eru besta forvörnin. Við höfum því miður orðið vitni að hörmulegum atburðum á opnum vegum í ofsaakstri og það er mjög mikilvægt því öryggið er allt í akstursíþróttunum,“ segir Willum Þór Þórsson, forseti Íþrótta- og ólympíusambandsins.Þrjú ungmenni létust í lok ágúst eftir að bíll þeirra hafnaði á hraunkletti utan vegar á Krýsuvíkurvegi. Talið er að bíllinn hafi verið á yfir 220 kílómetra hraða. Lögregla rannsak