Áin Sigyn, sem er fædd 2018, gerði sér lítið fyrir á dögunum og bar tveim lömbum, hrúti og gimbur. Áin og lömbin búa á bænum Brjánsstöðum í Grímsnes- og Grafningshreppi en þar eru um 40 vetrafóðraðar ær.„Hrútarnir voru með ánum eftir fengitímann og hún hefur fengið í vor, sennilega byrjun apríl. Svo er líklega önnur sem ber fljótlega hjá okkur,” segir Sonja Jónsdóttir á Brjánsstöðum.Fengitími kinda er yfirleitt í desember og sauðburður í maí.