Kvartanir um framferði lögreglustjóra á borði héraðssaksóknara

Tveimur kvörtunum sem bárust nefnd um eftirlit með lögreglu vegna Helga Jenssonar, lögreglustjóra á Vestfjörðum, í vor var vísað til héraðssaksóknara.Atvikin sem kvartað var undan áttu sér stað á Stútungi, þorrablóti Flateyringa. Önnur kvörtunin fjallaði um meint ofbeldi af hálfu lögreglustjórans. Í hinu erindinu var kvartað undan meintu kynferðislegu áreiti lögreglustjórans sem vísaði að minnsta kosti tvívegis til valds embættis síns.Héraðssaksóknari tók kvartanirnar til rannsóknar. Þeirri rannsókn lauk í maí. Þá var því vísað til ákærusviðs. Þetta staðfestir Karl Ingi Vilbergsson, saksóknari hjá héraðssaksóknara.Þótt málið hafi beðið hjá ákærusviði í nokkra mánuði eftir að rannsókn lauk er það ekki óalgengt. Þegar kemur að því að ákvörðun verði tekin eru þrjár leiðir sem málið getur fari
Kvartanir um framferði lögreglustjóra á borði héraðssaksóknara

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd