Volodomyr Zelensky, forseti Úkraínu, greindi frá því í dag að hann og Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, ætli að ræða saman í New York á næstu dögum. Þetta gera þeir á sama tíma og allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna stendur yfir.Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa þrýst á um friðarviðræður Rússa og Úkraínumanna.Zelensky sagði að hann og Trump hefðu ákveðið fundinn í símtali sem þeir áttu í dag. Zelensky sagði að þeir hefðu átt mikilvægt samtal og náð að ræða mörg atriði. Hann sagði að fundur þeirra í New York gæti breytt miklu um framtíðina. Hann kvað góðan gang í tilraunum til að koma á friði og tryggja öryggi.Volodymyr Zelensky.EPA / VLADYSLAV MUSIIENKO