„Þú getur alveg byrjað að endursenda dót aftur til landanna sem gáfu það. Finndu út hvað þú vilt ekki og sendu það til baka eins fljótt og hægt er,“ sagði Richard Grenell, yfirmaður Kennedy-miðstöðvarinnar í Washington, í tölvupósti til Josef Palermo, sýningarstjóra safnsins, í október í fyrra.Tölvupósturinn er hluti af gögnum sem The New York Times byggir á í umfjöllun sinni um það hvernig Donald Trump Bandaríkjaforseti og stuðningsmenn hans hafa reynt að gjörbreyta Kennedy-miðstöðinni.Mikið hefur verið rætt um baráttu Trumps fyrir að kenna miðstöðina við sjálfan sig. Hann skipaði nýja stjórn yfir The John F. Kennedy Center for the Performing Arts og lét bæta sínu nafni fremst í heiti stofnunarinnar og efst í merkinguna á framhlið þess. Dómstólar hafa síðar dæmt þá nafnbreytingu ólöglega