Þjóðverjar gengu að kjörborðinu í dag í tveimur af þeim sextán sambandslöndum sem mynda þýska ríkið. Þó að bæði sambandslöndin eigi það sameiginlegt að þar fagna flokkarnir á jöðrum þýskra stjórnmála sigri hallast fólk til sitt hvorrar áttar í löndunum tveimur.Í Meclenburg-Vestur Pommeraníu hlaut hægri jaðarflokkurinn Valkostur fyrir Þýskaland, AfD, 37 til 38 prósenta fylgi samkvæmt útgönguspám og virðist því hafa skákað Jafnaðarmönnum sem stærsti flokkurinn í fylkinu. Jafnaðarmenn fengu 35 til 37 prósent.Í Berlín var það flokkurinn á hinum enda hins pólitíska litrófs sem kjósendur fylktu sér helst um. Vinstri jaðarflokkurinn Die Linke hlaut 25-26 prósent atkvæða og er öllu stærri en Kristilegir demókratar og Valkostur fyrir Þýskaland sem koma næstir.Úrslitin eru mikið áfall fyrir Friedric