Hljómsveitin Quarashi tróð upp fyrir smekkfullri Laugardalshöll á dögunum í tilefni af þrjátíu ára starfsafmæli en þar komu einnig fram margir af þekktustu tónlistarmönnum landsins. Sölvi Blöndal, einn forsprakki sveitarinnar, hafði í viðtali lofað því að þetta yrðu stærstu tónleikar þeirra til þessa.