Formaður VR segir alveg skýrt að ef Samtök atvinnulífsins bjóði engar leiðréttingar fyrir launafólk verði kjarasamningum sagt upp.Forsendur kjarasamninga brustu í ágúst þegar verðbólga mældist yfir viðmiðum. Verkalýðsfélögin hafa til 8. október til að segja samningunum upp. ASÍ, SA og ríkisstjórnin eiga í þríhliða viðræðum til að reyna að koma í veg fyrir það.„Þar eru nú svona einhverjar hugmyndir komnar á blað en það vantar talsvert upp á að mati verkalýðshreyfingarinnar,“ segir Halla Gunnarsdóttir, formaður VR.„Síðan erum við auðvitað bara í viðræðum, VR, LÍV og fagfélögin, við Samtök atvinnulífsins um kjarasamningana okkar, þetta eru forsendur þeirra sem eru brostnar, og þær viðræður ganga ekkert sérstaklega vel,“ segir Halla.Hún segir verkalýðsfélögin hafa fundað þrisvar með Samtökum a