Hvasst í fyrramálið – gott að huga að lausamunum utandyra

Útlit er fyrir leiðindaveður í fyrramálið með hvassviðri og rigningu. Veðurstofan spáir suðaustan 13 til 20 metrum á sekúndu og verður hvassast syðst á landinu. Þar gæti jafnvel orðið enn hvassara um tíma og vindurinn því af stormstyrk.Veðurstofan varar við því að vindurinn geti orðið varasamur fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind. Þetta á einkum við syðst á landinu. Veðurstofan segir líka hyggilegt að huga að lausamunum utandyra, einkum suðvestanlands. Vindurinn verður hóflegri norðan til á landinu.
Hvasst í fyrramálið – gott að huga að lausamunum utandyra

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd