Leita leiða til að koma í veg fyrir að P-kortahafar séu rukkaðir

Fyrirtækin sem sjá um gjaldtöku á einkareknum bílastæðum gætu fengið upplýsingar um handhafa stæðiskorta fyrir hreyfihamlaða til að tryggja að þeir verði ekki rukkaðir í trássi við lög. Þetta er meðal þess sem ber á góma í áformum um lagasetningu sem var kynnt í samráðsgátt stjórnvalda fyrir helgi.Lögum samkvæmt eiga handhafar svokallaðra P-skírteina að geta lagt gjaldfrjálst hvar sem er. Þetta hefur þó ekki alltaf verið virt og hafa hreyfihamlaðir bílstjórar stundum verið rukkaðir um stöðugjöld.Í kynningu innviðaráðuneytisins á fyrirhugaðri lagasetningu segir að handhafar P-korta hafi gjarnan þurft að tilkynna komu sína fyrir fram eða óska eftir því að rukkun fyrir að leggja í stæði verði felld niður. Ráðuneytið segir að þetta skapi augljóst óhagræði fyrir fólk sem á rétt á að leggja gjal
Leita leiða til að koma í veg fyrir að P-kortahafar séu rukkaðir

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd