Í upphafi árs kallaði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra eftir samstöðu og varaði við sundrungu og „svartagallsrausi“. Slík orðræða vekur þó spurningu sem skiptir máli í lýðræðislegri umræðu: Hver ákveður hvað telst samstaða og hvað sundrung? Hvenær er gagnrýni málefnaleg og hvenær verður hún að svartagallsrausi? Hver skilgreinir það – og á hvaða forsendum?