Hvalveiðivertíðinni lokið

Hvalveiðivertíðinni er lokið í ár og veiddust 93 langreyðar á 94 dögum, segir Kristján Loftsson forstjóri Hvals hf. í skriflegu svari við fyrirspurn fréttastofu.Ákveðið hafi verið að hætta hvalveiðum fyrr vegna slæmrar veðurspár fyrir næstu viku.Kristján segir veður hafa haft áhrif á vertíðina; skipin hafi legið í Hvalfirði í um 25 daga vegna veðurs. Hvalveiðiskipin Hvalur átta og Hvalur níu eru komin aftur til Reykjavíkur, þar sem þau verða fram á næsta sumar.
Hvalveiðivertíðinni lokið

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd