Fjöldi fólks á öllum aldri tók þátt í að ferja 1.799 steina upp himnastigann í Kópavogi í dag fyrir Píeta samtökin. Með þessu vildu samtökin vekja athygli á nýju númeri hjálparsíma samtakanna – 1799, og minna á að fólk þurfi ekki að bera þungar byrðar ein. Það er hjálp að fá.Þegar fréttastofa leit við höfðu verið farnar hátt í þúsund ferðir með steina upp stigann.Eva Ólafsdóttir, félagsráðgjafi og meðferðaraðili hjá samtökunum, og Thelma Smáradóttir, fagstjóri og sálfræðingur hjá samtökunum, skipulögðu viðburðinn.„Þetta þýðir í rauninni bara að við þurfum ekki að bera sársaukann ein, við getum hjálpast að bera þungann upp saman, það er að segja steinana. Þannig að þetta er svolítið samstaðan og teymisvinna og það er alltaf hjálp að fá, það er alltaf von,“ segir Thelma.