Kosningalög ekki besta verkfærið til að verja byggð í landinu

Forseti Alþingis hefur fengið erindi frá Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra um að skipuð verði þingmannanefnd til að fjalla um tillögur starfshóps um að jafna vægi atkvæða. Hún segir kosningalög ekki besta verkfærið til að verja byggð í landinu.„Það er gríðarlega mikill munur á atkvæði kjósenda á Íslandi. Hann er sá mesti í Vestur-Evrópu allri,“ segir dómsmálaráðherra.Eitt markmiða í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er að jafna vægi atkvæða. Starfshópurinn leggur til í skýrslu og frumvarpsdrögum að þingsætum verði fækkað í hverju kjördæmi niður í sex og að samtals 27 þingsæti yrðu jöfnunarsæti.Jöfnunarsætunum yrði skipt milli kjördæma í réttu hlutfalli miðað við tölu kjósenda á kjörskrá.Vægi atkvæðis kjósanda er nú mest í Norðausturkjördæmi en minnst í Suðvesturkjördæmi
Kosningalög ekki besta verkfærið til að verja byggð í landinu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd