Heilbrigðisfulltrúar landsins eru 76 og eru ráðnir hjá sveitarfélögum. Eftirlit með matvælum, hollustuháttum og mengunarvörnum sem er á hendi heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga verður að mestu fært frá þeim til ríkisins. Lítil svör fást frá ríkinu og óvissan er óboðleg, segja forsvarsmenn á Suðurlandi.„Það hefur legið fyrir í svolítinn tíma en útfærslurnar og þá undirbúningurinn ríkismegin hefur bara ekki gengið nógu vel,“ segir Anton Kári Halldórsson, formaður Samtaka sunnlenskra sveitarfélagaVerkefnin flytjast til Umhverfis- og orkustofnunar annars vegar og til Stofnunar atvinnuveganna hins vegar. Sú stofnun hefur ekki tekið til starfa og ekki er enn búið að ráða forstjóra, hvað þá að ráða starfsmenn.Óvissa er hjá heilbrigðiseftirlitum landsins. Verið er að segja öllum heilbrigðisfulltrú