Niðurstöður rannsóknar tveggja vísindamanna gefa til kynna að mæður eigi erfiðara með að eignast sveinbörn en meybörn. Það er meðal annars vegna þess að drengir geta verið stærri við fæðingu en stúlkur og stórir drengir eru líklegri til að fleyta tegundinni áfram.Sem tegund sem gengur upprétt er maðurinn með þrengri fæðingarveg en önnur spendýr. Um allan heim deyja um 700 manns á degi hverjum af barnsförum. Mörg dauðsföll má rekja til höfuðlags barna sem er stærra en fæðingarvegurinn leyfir.Vegna þessa hefur lengi verið talið að fæðingar séu hættulegri mannskepnunni en öðrum dýrategundum. Rannsóknin leiddi hins vegar líka í ljós að fleiri tegundir sem fæða börn og fylgju glíma við sama vandamál. ERFIÐ FYRIR MÓÐUR EN GÓÐ FYRIR TEGUNDINA Mannfræðingarnir Nicole Grunstra og Jonathan C. K.