Fluttu snjómæla upp í fjallshlíð með dróna

Starfsmenn Veðurstofu Íslands í Neskaupstað settu upp tvo nýja snjómæla við Bræðslugjár og í Miðstrandargili. Þetta eru þekktir snjóflóðafarvegir ofan Norðfjarðarvegar.Stór dróni var notaður til að flytja búnaðinn upp í fjall.Veðurstofan fékk mælana að gjöf frá Síldarvinnslunni og segir að með þeim megi styrkja vöktun og skapa betri grundvöll fyrir ákvarðanir sem varða fólk sem ferðast um veginn eða starfar á svæðinu.
Fluttu snjómæla upp í fjallshlíð með dróna

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd