Þing- og héraðskosningum í Rússlandi lýkur í dag. Þær hafa staðið síðan á föstudag. Gagnrýnendur stjórnvalda segja kosningarnar hvorki frjálsar né gagnsæjar enda fá flokkar sem hafa gagnrýnt Pútín eða stríðið í Úkraínu ekki að bjóða fram.Búist er við að yfirvöld tilkynni um fyrstu tölur síðdegis og að lokaniðurstaða kjörstjórnar liggi fyrir á morgun. Ekki er búist við öðru en að tilkynnt verði að Sameinað Rússland, flokkur forsetans, hljóti flest atkvæði. Leiðtogi flokksins Yabloko í Moskvu, sem bannað er að bjóða fram, sagði óvenjulegt hversu margir lögreglumenn hefðu verið á kjörstað. Hann taldi augljóst að það væri vegna komu flokksmanna.Frá kjörstað í Moskvu.AP / Pavel Bednyakov