Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, lagði í dag af stað til Bandaríkjanna á allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna. Samhliða þeirri ferð hittir hún Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, og þau undirrita nýgerðan samning um varnarmál á Grænlandi. Frederiksen var spurð út í efnisatriði samningsins þegar hún lagði af stað til Bandaríkjanna en neitaði að fara djúpt í atriði hans. Hún sagði að hvorki hún né Jens-Frederik Nielsen, forseti heimastjórnar Grænlands, myndu leggja nafn sitt við samning sem væri ekki góður fyrir Grænland og danska ríkið. Frederiksen sagðist vera í góðu sambandi við Trump og að samningurinn væri góður fyrir öryggi Dana og Grænlendinga.