Umboðsmaður Alþingis komst að þeirri niðurstöðu á dögunum að ríkisskattstjóri hefði ekki farið rétt að þegar stöður þriggja aðalvarðstjóra voru lagðar niður og fólk ráðið á lægri launum til að sinna sömu verkefnum.Aðalvarðstjórarnir unnu við tollgæslu á Keflavíkurflugvelli. Þegar ríkisskattstjóra var gert að hagræða í rekstri 2024 og 2025 ákvað hann að leggja stöður aðalvarðstjóra niður. Þessum störfum sinntu einstaklingar með minnst 15 ára starfsreynslu. Því voru allir varðstjórarnir með eins árs biðlaunarétt. VILDI LÆKKA LAUNAKOSTNAÐ OG EINFALDA SKIPULAG Ríkisskattstjóri rökstuddi niðurlagningu embættanna með því að lækka þyrfti launakostnað, einfalda skipulag og auka skilvirkni. Hann sagði aðalvarðstjórana hafa sinnt sömu verkefnum og tollsérfræðingar og tollverðir gerðu. Þau verkefn