Kerfið er illa viðbúið málum sem snúa að ungu fólki með mænu- eða heilaskaða. Dæmi eru um að ungt fólk sé sent á elliheimili eða bíði lengi inni á heilbrigðisstofnunum þar sem sveitarfélög eru lengi að mæta þjónustuþörf þeirra eftir útskrift. Magdalena Ásgeirsdóttir, yfirlæknir Grensásdeildar, og Guðrún Bragadóttir, deildarstjóri endurhæfingardeildar, segja að sérstaklega flókin mál lendi á vegg í kerfinu....