Embætti landlæknis setti SÁÁ úrslitakosti í síðustu viku og tilkynnti að ef ekkert yrði að gert á næstu tveimur virkum dögum þyrfti að loka sjúkrahúsinu Vogi. Til að forðast þetta þyrfti sérfræðilæknir að gangast við faglegri ábyrgð á heilbrigðisstarfseminni fyrir klukkan 16 síðasta mánudag.