Ákærður fyrir stórfellt brot gegn barnabarni sínu

Héraðssaksóknari hefur ákært karlmann fyrir kynferðislega áreitni og stórfellt brot í nánu sambandi gegn barnabarni sínu.Meint brot átti sér stað á heimili mannsins 22. desember 2023. Maðurinn er ákærður fyrir að hafa dregið buxnaskálmar á barnabarni sínu upp að mjöðmum og nuddað ber læri hennar og nára, farið með hönd undir nærbuxur og snert og nuddað kynfæri hennar. Með þessu hafi ákærði ógnað lífi, heilsu og velferð stúlkunnar.Ekki kemur fram í ákærunni hversu gamalt barnið var þegar brotið átti sér stað en í einkaréttarkröfu kemur fram að stúlkan sé ólögráða. Foreldri krefst þess fyrir hönd hennar að maðurinn greiði henni 3,5 milljónir króna í miskabætur.Málið var tekið fyrir í héraðsdómi Reykjavíkur í vikunni.
Ákærður fyrir stórfellt brot gegn barnabarni sínu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd