Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa hefur lagt fyrir ónefndan iðnaðarmann að endurgreiða konu hluta innborgunar inn á verk sem fólst í framkvæmdum á heimili foreldra hennar, sem hún tók að sér að greiða fyrir. Iðnaðarmaðurinn hóf verkið en lauk því aldrei.