Ökumaður á fjórhjóli slasaðist þegar hann missti stjórn á hjóli sínu með þeim afleiðingum að það lenti á tré. Slysið varð við Hafravatn um klukkan sex síðdegis í gær. Ekki fengust upplýsingar um hvort eða hversu alvarlega ökumaðurinn slasaðist.Lögreglubíll og tveir sjúkrabílar voru sendir á vettvang. Nokkur fjöldi fjórhjólamanna var þarna á ferð.Hafravatn. Mynd úr safni.RÚV