Olía lak í undirgöngum

Lokað var fyrir undirgöngin þar sem Hálsabraut liggur undir Vesturlandsveg í Reykjavík í morgun. Olía lak í undirgöngunum og bíll sem átti þar leið um rann í olíunni. Slökkviliðsmenn lokuðu undirgöngunum þar til starfsmenn frá Hreinsitækni komu til að hreinsa burt olíuna. Það var gert svo ekki yrðu frekari slys vegna olíulekans.Hreinsistarf í gangi.RÚV / Þórdís Arnljótsdóttir
Olía lak í undirgöngum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd