Hægur vindur en víða blautt

Í dag dropar aðeins á landsmenn en vindur verður með hægara móti. Meiri kraftur verður í veðrinu á morgun þegar austan- og suðaustan átt gengur yfir landið með rigningu. Vindur fer langleiðina í stormstyrk þar sem hann verður ákafastur, syðst á landinu.Suðvestlæg átt, 3-8 metrar á sekúndu, og víða dálítil rigning eða stöku skúrir, en styttir upp sunnanlands eftir hádegi. Vaxandi suðaustanátt á sunnanverðu landinu annað kvöld.Austan og suðaustan 10-20 með rigningu á morgun, hvassast syðst. Snýst í suðlæga átt 8-15 með skúrum síðdegis og léttir til norðaustanlands.
Hægur vindur en víða blautt

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd