Kviknaði í tölvu á eldavél

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út vegna elds í Hlíðahverfi í Reykjavík. Þar hafði kviknað í tölvu sem hafði verið skilin eftir á eldavél. Af þessu varð mikill reykur og reykskynjarar fóru í gang.Að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu var eldurinn lítill og búið var að slökkva hann áður en slökkviliðsmenn komu á staðinn. Þeir tóku að sér að reykræsta húsið. Slökkviliðsmaður að störfum.RÚV / Ragnar Visage
Kviknaði í tölvu á eldavél

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd