Grunur leikur á að eitrun hafi valdið dauða tíu ljóna á Ngorongoro-verndarsvæðinu í Tansaníu, samkvæmt upplýsingum yfirvalda. Svæðið er á heimsminjaskrá UNESCO. Í yfirlýsingu frá stjórn Ngorongoro-verndarsvæðisins er almenningi tilkynnt að ljónin hafi fundist dauð 18. september og að bráðabirgðaniðurstöður krufningar bendi til að þau hafi innbyrt eitur. Sérfræðirannsókn væri ætlað að skera endanlega úr um hvað varð dýrunum að aldurtila og finna þá sem beri ábyrgð. Mikil spenna hefur ríkt í samskiptum yfirvalda og hirðingjasamfélags sem býr í Ngorongoro og manntjón hefur orðið í átökum tengdum áætlunum um brottflutning fólksins. Stjórnvöld í Tansaníu halda því fram að fólksfjölgun gangi hart á búsvæði villtra dýra. Frá árinu 1959 hefur íbúum í Ngorongoro fjölgað úr rúmlega átta þúsund í yfi