Ungt jafnaðarfólk hvetur borgarstjórn til að afturkalla niðurskurð í þjónustu við börn og ungmenni

Ungt jafnaðarfólk skorar á meirihlutann í Reykjavík að afturkalla niðurskurð í þjónustu við börn og ungmenni og kallar jafnframt eftir því að ríkisstjórnin leiði þjóðarátak í velferð.Frá mótmælum starfsmanna félagsmiðstöðva við Ráðhús Reykjavíkur.RÚV / Eva Björk BenediktsdóttirLjúka skuli vinnu við fyrstu ungmennastefnu Íslands, sem sé stórt skref en því þurfi að fylgja aðgerðir. Þetta er hluti stjórnmálaályktunar sem samþykkt var á landsþingi Ungs jafnaðarfólks sem haldið var dagana um helgina.Borgarstjórn er einnig hvött til að bæta lýðheilsu. „Á sama tíma og fréttist af hnignandi niðurstöðum í PISA-könnunum og versnandi líðan ungmenna virðist meirihlutinn í Reykjavíkurborg hafa einbeittan vilja til að gera vont ástand verra.“
Ungt jafnaðarfólk hvetur borgarstjórn til að afturkalla niðurskurð í þjónustu við börn og ungmenni

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd