Mannskæðar árásir á báða bóga í nótt

Að minnsta kosti tvennt var drepið í umfangsmikilli drónaárás Úkraínuhers á rússnesku höfuðborgina Moskvu í nótt. Það voru kona á fimmtudagsaldri og roskinn karlmaður, hvort á sínu landsvæðinu, að sögn hermálayfirvalda. Stór olíuhreinsistöð skemmdist í árásinni og koma þurfti um fjögurhundruð íbúum fjölbýlishúss í borginni á brott eftir að eldur kviknaði. Tæplega fertug kona og tvö börn voru drepin í drónaárás Rússlandshers á þorpið Hlevakha nærri úkraínsku höfuðborginni Kyiv í nótt. Kyiv Independent hefur eftir lögreglu að annað barnið sé tveggja ára sonur konunnar en ekkert liggur enn fyrir um skyldleika hennar við hitt barnið, sem var þriggja ára stúlka. Borgarstjórinn í Moskvu, Sergei Sobyanin, sagði árásina fordæmalausa og að yfir 1.600 drónar hefðu verið skotnir niður, þar af 450 sem
Mannskæðar árásir á báða bóga í nótt

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd