Slökkviliðsmaður að störfum. Mynd úr safni.RÚV / Ragnar VisageSlökkviliði höfuðborgarsvæðisins barst tilkynning um bíl í ljósum logum við Rauðhóla nærri Suðurlandsvegi um klukkan eitt í nótt. Samkvæmt upplýsingum varðstjóra hjá slökkviliðinu var þetta ökufær bíll en ekki á ferð þegar eldurinn kom upp. Hann segir engan hafa verið í hættu. Slökkviliðsmenn luku störfum á vettvangi milli klukkan tvö og hálf þrjú og þá var flakið flutt brott.