Eldflaug grandað á leið til Riyadh

Yfirvöld í Sádi Arabíu segja herinn hafa grandað langdrægri eldflaug sem uppreisnarmenn Húta í Jemen skutu í átt að höfuðborginni Riyadh í dögun. Hútar sjálfir segjast hafa gert atlögur að því sem þeir kalla „viðkvæm skotmörk“ í Sádi Arabíu.Sádar fara fyrir fjölþjóðaher sem barist hefur gegn Hútum við hlið stjórnarhers Jemen. Spenna hefur vaxið mjög síðustu vikur og Hútar hafa gert nokkrar árásir á Sádi Arabíu, meðal annars á borgaralega innviði á borð við flugvelli. UTANRÍKISRÁÐUNEYTI BANDARÍKJANNA VARAR VIÐ FERÐALÖGUM Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna og nokkur sendiráð hafa varað bandaríska ríkisborgara við og sagt átökin geta magnast enn frekar og hratt. Því ættu Bandaríkjamenn að íhuga gaumgæfilega hvort þeim þyki vert að ferðast til Mið-Austurlanda.Donald Trump Bandaríkjaforseti ko
Eldflaug grandað á leið til Riyadh

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd