Niðurstöður kosninga til þinga tveggja sambandslanda í Þýskalandi í dag gætu valdið miklum titringi í Berlín og veikt stöðu ríkisstjórnar kanslarans Friedrichs Merz sem þegar á undir högg að sækja. Óróanum veldur helst möguleg fylgisaukning flokka lengst til hægri og vinstri á pólitíska litrófinu, sem sjá má í skoðanakönnunum. Kanslarinn hefur boðað neyðarfund með forystu Kristilega demókrataflokksins eftir að fyrstu tölur berast frá Berlín og Mecklenborg-Vorpommern. Kannanir benda til þess að harðlínuhægriflokkurinn Alternative für Deutschland fái 36 prósent atkvæða og Jafnaðarmannaflokkurinn 37 af hundraði í Mecklenborg. Kristilegir mælast aðeins með sex prósenta fylgi, hársbreidd frá þeim fimm prósentum sem þarf til að koma manni að. Félli flokkurinn af þinginu í Mecklenborg-Vorpommern