FÍB segir litlar breytingar hafa orðið varðandi innheimtu vangreiðslugjalda á bílastæðum nema að ítarlegri texti með smærra letri hefur verið settur á skilti við gjaldskyld stæði. Einnig sé svo komið að reikningur fylgi orðið kröfum bílastæðafyrirtækjanna í heimabanka.Ný lög um markaðssetningu frá í maí hafi lítil sem engin áhrif á innheimtu vangreiðslugjaldanna, sem mikið hafi verið kvartað undan. FÍB og Neytendasamtökin telja nýlegan norskan dóm um ólögmæti aukagjalda á bílastæði geta átt við hérlendis.Hins vegar hafi Neytendastofa í ágúst sektað bílastæðafyrirtækin Parka og Easypark vegna ófullnægjandi upplýsinga og merkinga. Þannig einblíni Neytendastofa á smáa letrið en ekki stærri þætti málsins.FÍB rifjar upp að Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra boðaði aðgerðir til umbóta