Minnst 24 handteknir við mótmæli gegn innflytjendastefnu stjórnvalda

Lögregla handtók 24 mótmælendur í hollensku borginni Haag í dag við um 500 manna útifund samtaka yst á hægri kanti stjórnmálanna.Frá mótmælum hópsins Wij Zijn Het Volk í Haag.EPA / LINA SELGHollenska almannafréttastöðin NOS segir ofbeldi hafi brotist út á fundinum og lögregla því ætlað að leysa hann upp. Þá köstuðu svart- og grímuklæddir mótmælendur skoteldum að lögreglu sem svaraði með beitingu vatnsfallbyssa. Mótmælin beindust að innflytjendastefnu stjórnarinnar og voru skipulögð af samtökunum Wij Zijn Het Volk sem gæti útlagst Við erum þjóðin.
Minnst 24 handteknir við mótmæli gegn innflytjendastefnu stjórnvalda

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd