Café Rosenberg opnar dyr sínar á ný von bráðar en nú á horni Naustanna og Tryggvagötu þar sem Gamla Amsterdam, Ölstofan Fredriksen og Bird voru áður til húsa. Áfram verður lögð áhersla á persónulega þjónustu, lifandi tónlistarflutning og góðar stundir en nú þegar hefur fjöldi tónlistaratriða verið bókaður út haustið.