Tveir þýskir karlmenn voru handteknir í Louvre-safninu í París eftir að þeir hengdu tvö málverk á vegg sýningarsalarins þar sem Mona Lisa er til sýnis. Þeir notuðu límband við verknaðinn. Fjöldi fólks kemur í Louvre-safnið á hverjum degi til að skoða þetta eitt frægasta málverk heims, sem er eftir ítalska listmálarann og fjölfræðinginn Leonardo da Vinci. Frönsk lögregluyfirvöld segja myndirnar hafa verið 30 sinnum 40 sentímetrar að stærð. Önnur þeirra hafi sýnt annan mannanna í fullum herklæðum og hin hafi verið af þeim báðum ásamt kvenmanni. Öryggisverðir stöðvuðu tvímenningana og héldu þeim uns lögreglumenn bar að garði og handtók þá fyrir minniháttar eignaspjöll. Við yfirheyrslu sögðust þeir hafa hengt myndirnar upp sér til gamans. Þeir verða kallaðir fyrir rétt þegar Louvre-safnið legg