Svikasögur, nýtt íslenskt verk eftir Maríu Reyndal, verður frumsýnt á fjölum Borgarleikhússins í kvöld. Verkið er fyrsta frumsýning vetrarins hjá Borgarleikhúsinu.María er bæði höfundur og leikstjóri verksins.„Verkið fjallar um Nönnu, sem er 13 ára stelpa árið 1984, og áhrifin sem það hefur á hana þegar allt fer í steik hjá fjölskyldunni hennar, en þetta er samt líka mjög fyndið og skemmtilegt!“ segir María.Sjálf var María 13 ára stelpa árið 1984 líkt og Nanna og segir María að þó að hún hafi sótt einhvern innblástur í sitt eigið líf sé verkið ekki sannsögulegt.„Það eru alveg snertifletir, fjölskyldan mín gekk í gegnum erfiða hluti en svo spinn ég og stel, svo núna er fjölskyldan farin að segja ef eitthvað gerist: Ég vil ekki sjá þetta á stóra sviðinu, María!“