Tvö ný hverfi og blásið til sóknar

Tvö þúsund ný störf, þar af eitt þúsund varanleg, verða til við uppbyggingu í Reykjanesbæ. Bæjarstjóri segir fjölda tækifæra í bænum og tvö ný hverfi í bígerð.Þessi áform voru kynnt á atvinnu- og framkvæmdaþingi Reykjanesbæjar. Bæjarstjóri segir að líklega hafi aldrei verið jafn mikil gróska í atvinnulífi bæjarins. Hátt í 40 atvinnulóðir eru á lausu í bænum. GAGNAVERSHÖFN ÍSLANDS „Bæði eru kjarnafyrirtækin hér að stækka gríðarlega mikið og svo eru að koma ný tækifæri hérna inn,“ segir Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri í Reykjanesbæ.„Við erum náttúrulega gagnavershöfn Íslands og öll þjónustan í kringum það. Svo er landeldi farið að byggjast hérna upp. Og við erum líka með alla þessa uppbyggingu á flugvallarsvæðinu.“Og uppbygging kallar á þjónustu. „Lítil og meðalstór þjónustufyrirtæki eru í
Tvö ný hverfi og blásið til sóknar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd