Bílaumboðinu Heklu hefur verið lokað á Laugaveginum en á mánudag opnar fyrirtækið á nýjum stað í Þorraholti í Garðabænum. Flutningarnir eru mikil tímamót í sögu umboðsins en verslunin hafði staðið í 65 ár við Laugaveg og var þar áður á Hverfisgötu. Nú lýkur því rúmum 90 ára skeiði sem reksturinn hafði búsetu í Reykjavík og nýir tímar taka við.